skip to Main Content

Kópavogsbær innleiðir lausnir Alvican

Alvican hefur lokið innleiðingu á velferðartæknilausnum í nýjum íbúðakjarna Kópavogsbæjar við Fossvogsbrún. Íbúar og starfsmenn njóta stafrænna lausna og m.a. búa við aukið öryggi með rápskynjurum, snjallkerfi og öryggishnöppum. Öryggishnapparnir virka bæði innan- og utandyra og eru talrás í báðar áttir og GPS kerfi sem lætur vita um staðsetningu ef kallað er eftir aðstoð utandyra sem styttir leitartímann mikið.

Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun. Einnig er hægt að stilla hnappana þannig er að þeir gefi einnig upp innanhús staðsetningu.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
info@alvican.com
+0354 4922002

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top